Merki
UpphafssíðaViðburðirSýningUm okkurÞjónustaEldsmiðjanFréttir
 

NÆSTU ATBURÐIR:


17. júlí. K Tríó
23. júlí Svavar Knútur
24. júlí.  Hljómsveitin Árstíðir
Sjá nánari upplýsingar HÉR
Opnunartími

Á sumrin er kaffihúsið opið 11-18

Á veturna er kaffihúsið lokað nema sérstakir atburðir eru á dagskrá en þeir eru sérstaklega auglýstir. 


 

60540027litle.jpg

 

Skráning á póstlista






sjrningjahsi_027litil.jpg

 

Hvað er Sjóræningjahúsið?
60540028.jpg Í heimildum eru til afar spennandi og dramatískar frásagnir af komum sjóræningja til Vatneyrar við Patreksfjörð seint á 16. öld og snemma á þeirri 17. Þessar frásagnir eru kveikjan að hugmyndinni sem býr að baki Sjóræningjahúsinu.

Starfsemi Sjóræningjahússins er margþætt; fyrst og fremst er um sýningu að ræða sem segir sögur af sjóránum við Íslandsstrendur, minjagripa- og handverksverslun er í húsinu og þar er einnig rekið kaffihús. Markmið okkar er að fjölskyldur geta komið og eytt tíma saman og allir finni eitthvað spennandi að skoða.

Á kaffihúsinu er lögð mikil áhersla á góða þjónustu fyrir yngstu gestina, bæði í veitingaúrvali og afþreyingarefni en þar er mikið til af bókum og spilum fyrir fólk á öllum aldri.
sjrningjahsi_135litil.jpg

Þar sem um stórt verkefni er að ræða verður að vinna það í mörgum skrefum og fyrsti hlutinn var opnaður í maí 2008. Sá hluti er kaffihúsið, minjagripa- og handverksverslunin og lítil sýning sem má segja að sé inngangur að því sem koma skal. Vorið 2009 verður hönnun útisvæðis lokið og mun vinna við það hefjast vorið 2010. 

 
Þjónusta í Sjóræningjahúsinu
Á veturna er hægt að leigja kaffihúsið sem aðstöðu til veislu-, funda- og tónleikahalds með möguleika á léttum veitingum. Á kaffihúsinu erum við með góða fundaraðstöðu með skjávarpa, tjaldi og þráðlausu interneti.



sjrningjahsi_174minni.jpg
Lesa meira...
 
Eldsmiðjan
Eldsmiðjan er salur í Sjóræningjahúsinu sem tekinn var í notkun vorið 2009. Salurinn er notaður undir menningarviðburði af ýmsu tagi og þar hafa t.d. verið haldnir tónleikar, fyrirlestrar og sirkussýningar. Þar fyrir utan er salurinn leigður út til einkasamkvæma og einnig er þar tekið á móti hópum í mat.

Eldsmiðjan er 100 m2 og þar komast 60 manns í sæti við borð, ef borðunum er sleppt komast 100 manns í sæti. 


 Þeim sem hafa áhuga á að troða upp í Sjóræningjahúsinu er bent á að hafa samband við Öldu í síma 845-5366 eða á Þetta netfang er varið fyrir ruslpóst snöpum, þú þarf að hafa javascript virkt í vafranum til að sjá það.

 

hg.jpg

Lesa meira...
 
Skiptibókamarkaður

Í Sjóræningjahúsinu er starfræktur skiptibókamarkaður þar sem gestir geta komið með bækur og tekið aðrar í staðinn.  Í hillum Sjóræningjahússins eru yfir 400 bókatitlar sem bíða, á nokkrum tungumálum og fyrir allan aldur.



sjrningjahsi_179minni.jpg

 
Sjóræningjahúsið | Smiðjunni við Aðalstræti | 450 Patreksfirði | Þetta netfang er varið fyrir ruslpóst snöpum, þú þarf að hafa javascript virkt í vafranum til að sjá það. | sími 456-1133 
 
vefhönnun: Hugsa sér !